Augnablik...
Íslenska

Versla

Innblástur

Þarftu hjálp?

Um okkur

Shopping Bag

Algengar spurningar

Byrjaðu á að skoða vöruúrvalið okkar. Þar finnur þú gardínur og gluggatjöld sem þú sérsníður að þínum þörfum, eftir máli. Þegar þú ert tilbúin/n velur þú Bæta í körfu. Þú getur líka haft samband við okkur eða valið að bóka ráðgjöf.

Sérsniðið, þýðir eftir þínu máli, þú mælir gluggana og það ræður stærð gluggatjaldanna. Mælingaleiðbeiningar og myndbönd með leiðbeiningum um að taka málin er að finna á aðstoðarsíðunni.

Þú getur bókað mælingu og þá mun ráðgjafi frá okkur vera þér innan handar við mælinguna.

Hafðu samband ef þú ert með einhverjar fyrirspurnir eða endurgjöf.

Við bjóðum viðskiptavinum okkar upp á fría ráðgjöf, þjónustu þar sem við komum þér í samband við einn af ráðgjöfum okkar í hönnun. Ráðgjafar okkar eru til þjónustu reiðubúnir til að svara spurningum þínum varðandi hönnun og til að aðstoða þig við að finna réttu lausnirnar fyrir þig þegar kemur að gardínum og gluggatjöldum.

Nei. Casalísa býður viðskiptavinum sínum þessa þjónustu, þér að kostnaðarlausu. Afhending er innifalin þegar þú pantar vörur að lágmarki fyrir 75.000 krónur. Þú getur bókað mælingu ásamt því að bóka ráðgjöf um hönnun og pantað sýnishorn, allt þér að kostnaðarlausu.

Við bjóðum viðskiptavinum okkar um allan heim upp á sýndarráðgjöf. Þetta gefur okkur færi á að aðstoða fólk betur sem býr á landsbyggðinni og lágmarka kolefnisfótspor okkar, sem er eitt af grunngildum okkar hjá Casalísa. Þegar þú ert tilbúin til að panta, bjóðum við upp á fría mælingu á Suðvesturhorni Íslands (Stórhöfuðborgarsvæðið, Selfoss, Keflavík, Akranes og Vestmanneyjum). Utan þess svæðis er mælt gegn gjaldi. Mælingarráðgjafi kemur með helstu sýnishorn.

Já, við erum með sýningarsal í Síðumúla 33 þar sem þú getur fengið aðstoð og ráðgjöf varðandi sérsniðnar gardínur og gluggatjöld. Verið velkomin til okkar í Síðumúla 33.

Öll gluggatjöld og gardínur eru með ábyrgð. Þetta þýðir að við gerum við eða skiptum út þeim vörum sem hægt er að færa sönnur á að séu með framleiðslugalla. Varan sem kemur í stað þeirrar sem skipt er út, verður að vera fyrir sama glugga.

Við erum með tryggingu á mælingu, sem er fyrirvari um að varan passi. Þegar þú kaupir af okkur ábyrgjumst við að gluggatjöldin eða gardínurnar passi fyrir viðkomandi glugga.

Ef 1) þau eru of stór til að passa, eða 2) aðeins þarf að minnka stærðina til þess að þau passi. Þá sendir þú vöruna til okkar aftur og við aðlögum stærðina.

Já, allt sem snýr að gluggatjöldunum og gardínunum til uppsetningar fylgir með þegar þú pantar hjá okkur. Hins vegar eru veggir og karmar úr mismunandi efnum (Steinn, viður, gips) og þú þarft að 1) kaupa viðeigandi skrúfur fyrir efnið sem á að festa í og 2) vera með viðeigandi verkfæri til að ganga í verkið.

Hafðu samband til að fá ráðleggingar um hvað þú þarft og hvað virkar best.

Uppsetning á gluggatjöldum og gardínum frá okkur er auðveld og fljótleg. Við erum með ítarlegar leiðbeingar um uppsetningu sem auðvelt er að fylgja í myndböndum. Auk þess bjóðum við upp á uppsetningarþjónustu.

Við bjóðum upp á greiðslur með Kreditkorti, Debitkorti og millifærslum. Því til viðbótar bjóðum við viðskiptavinum okkar að greiða með Netgíró, Síminn Léttkaup og Pei, þar sem boðið er upp á afborganir. Dreifðu kostnaðinum, þú getur keypt núna og borgað seinna.

Vörurnar sem við seljum eru sérframleiddar eftir máli og þar af leiðandi er ekki hægt að skila eða hætta við pöntunn eftir að hún er staðfest með greiðslu. Ef um sannanlegan framleiðslugalla er að ræða. Þá lögum við varninginn þér að kostnaðarlausu eða framleiðum nýja vöru ef ekki er hægt að lagfæra. Ef við getum hvorki lagfært né framleitt nýja vöru, þá fær viðkomandi endurgreitt að fullu.

Pöntunarkerfið okkar er með rekjanleika þar sem hægt er að finna upplýsingar um framvinduna. Endilega hafið samband við okkur til að fá upplýsingar um stöðu pöntunar.

Handryksuga er venjulega allt sem þarf til þess að halda gardínum og gluggatjöldum hreinum. Ryksugaðu með lágum styrk. Flest efni má einnig þurrka af með rökum, mjúkum klút og afþurrkunarkústar geta líka gert sitt gagn. Loft úr háþrýstidælu er mjög gott að nota en gerum okkur grein fyrir því að flestir hafa ekki aðgang að því.

Ef um bletti er að ræða eftir börn, gæludýr eða athafnir daglegs lífs þá getur verið gott að nota gufugræju. Þvottaleiðbeiningar eru svo gefnar upp fyrir hvert efni um sig. Fyrir erfiða bletti má prófa að nota rauðspritt og hvíta hreina tusku til að reyna nudda blett úr.

Vörurnar okkar eru með misstuttan afhendingartíma, en að meðaltali eru þetta 2 - 5 vikur.

  • Rúllugardínur og strimlagluggatjöld: 2 vikur eða skemmri afhending
  • Plíseruð gluggatjöld og Honeycomb gardínur: 2 - 3 vikna afhendingartími
  • Sérsniðin gluggatjöld og felligardínur: 4 - 5 vikna afhendingartími

Birturifan segir til um hversu vel gardínan eða gluggatjaldið fyllir út í gluggarammann.

Minni rifa (t.d. 2 mm) þýðir að gardínan kemur til með að falla alveg að gluggakarminum til að dreifa sem best birtustiginu og til myrkvunar.

  • Rúllugardínur: 1.4cm á hvorri hlið
  • Plíseruð gluggatjöld: 2mm á hvorri hlið
  • Honeycomb gardínur: 2mm á hvorri hlið
  • Felligardínur: 2-3 mm á hvorri hlið
  • Strimlagluggatjöld: 5-6 mm á hvorri hlið

Gerast áskrifandi og vista

Sláðu inn netfangið þitt til að fá uppfærslur og sértilboð frá Casalisa

Afhending

Hröð og góð þjónusta, frá þinni hönnun til afhendingar líða frá aðeins 14 dagar.

Ábyrgðir

Passar þetta ekki? Við aðlögum stærðina svo allt smellipassi fyrir gluggana hjá þér

Sýnishorn

Fáðu sýnishorn og prufur til að finna hvaða efni og áferð passa þér best

Fagleg ráðgjöf

Bókaðu [fría mælingu](https://csla.store/maeling-radgjof) við ráðgjafa okkar til að fá aðstoð með hönnun og val efna


547-1000

© 2025. Casalísa
Augnablik...
Íslenska